Stefánsdagur í dag

Þá er annar dagur jóla runninn upp bjartur og fagur og jólsveinarnir farnir að koma sér heim. Landsmenn hafa flestir minnst fæðingar Jesú í gær þann 25. desember en oft gætir misskilnings með aðfangadag jóla. Hann er ekki sérstakur hátíðisdagur heldu markar hann lok aðventu eða jólaföstu en kl. 18.00 hefst jóladagur. Á Vísindavefnum segir að ástæðan fyrir þessu sé, að í stað þess að miða upphaf dags við sólarlag eins og Gyðingar, fastsettu kristnir menn upphaf daga við miðjan aftan og lifir það í hátíðadagatalinu. Íslendingar fylgja þessu enn hvað jólin snertir.

 

Í dag 26. desember er Stefánsdagur sem haldinn er til minningar um fyrsta píslarvottinn, Stefán frumvott, en hann var grýttur þennan dag á 1. öld.

28. desember er barnadagurinn til minningar um sveinbörnin öll í Betlehem, tveggja ára og yngri, sem Heródes lét drepa til að freista þess að ráða niðurlögum hins nýfædda konungs.

1. janúar. Áttidagur. Fornt heiti á 8. degi jóla, en innan kirkjunnar hafði áttundi dagur (octava) frá messudegi sérstaka þýðingu sem lokadagur vikuhátíðar. Hann fellur á nýársdag í gildandi tímatali og er til minningar um að Jesú var gefið nafn.

6. janúar. Þrettándinn. Á 4. og 5. öld fór að tíðkast að minnast fæðingar Jesú 25. desember en skírnarinnar og tilbeiðslu vitringanna 6. janúar, og má þangað rekja jóladagana 13 á Íslandi. Formlega var ákveðið með þá árið 567 á 2. kirkjuþinginu sem haldið var í Tours í Frakklandi.

Fleiri fréttir