Stefnir í 16-17 stig á laugardaginn

Vor er í veðurkortunum hjá Sigurði Þ. Ragnarssyni veðurfræðingi, eða Sigga Stormi eins og hann er betur þekktur, en samkvæmt honum geta Norðvestlendingar farið í stuttbuxurnar og sett upp sólgleraugun nk. laugardag.

Það stefnir í svaka flott veður á laugardaginn eins og spáin hljómar og kortin líta út. Laugardagurinn verður sennileg hlýrri en sunnudagurinn. Mér sýnist á norðvesturlandi verði jafnvel sextán til sautján stig,“ segir Siggi stormur í samtali við DV.is.

Hann bætir þó við að vorið sé ekki alveg komið en það sé að brjótast fram. Við fögnum því og njótum þess að fá forsmekk af því sem koma skal.

Veðurhorfur á landinu næstu daga samkvæmt Veðurstofu Íslands:

Í dag og á morgun:

Suðaustanátt, víða 8-15 m/s, hvassast SV-til. Rigning eða súld, en úrkomulítið NA-lands. Hlýnandi veður. Suðaustan 8-13 á morgun, skýjað og rigning eða súld í fyrstu S- og V-til. Hægari vindur og léttir til á NA-verðu landinu. Hiti 6 til 12 stig.

Á laugardag:
Austan og suðaustan 5-15 m/s, hvassast syðst. Víða léttskýjað á N-verðu landinu. Þykknar upp S-til og rigning þar um kvöldið. Hiti 6 til 13 stig, hlýjast N- og V-lands.

Á sunnudag, mánudag og þriðjudag:
Sunnan- og suðvestanátt. Rigning með köflum, en úrkomulítið NA-lands. Fremur hlýtt, einkum á NA-verðu landinu.

Á miðvikudag:
Suðvestanátt og skúrir eða él, en þurrt A-lands. Hiti 0 til 5 stig.

 

Fleiri fréttir