Stefnir í hörkutónleika á Gærunni 2011

Það stefnir í hörkufónleika á Gærunni 2011 sem fram fer í húsnæði Loðskinn á Sauðárkróki helgina 12 – 14 ágúst. Miðasala er hafin bæði á Kaffi Krók svo á Midi.is og er því um að gera að tryggja sér miða í tíma þar sem um takmarkað upplag miða er að ræða. Stórstjörnur jafnt og smástirni og jafnvel rísandi stjörnur munu koma fram á Gærunni og er því ljóst að allir sem á annað borð hafa gaman að góðri tónlist ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.

Þá er Gæran líka orðin lítil kvikmyndahátíð. En sýndar verða heimildarmyndir um íslenska tónlist í samstarfi við Icelandic Cinema Online!

Listi flytjenda er eftirfarandi;

Múgsefjun, Blaz RocaContalgen,Funeral,The Vintage,Carava, Valdimar, Earandel, Brother Grass, Biggi Bix, Douglas Wilson, Rock to the Moon, Benny Crespo´s Gang, Morning after youth, Vigri, Hælsæri, Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar, Myrká, Depublic, Úlfur Úlfur, feat., Emmsé, Gauti, Sverrir Bergmann og band, Ómar Diðriks og Sveitasynir, Mega Boogie

Fleiri fréttir