Stefnumót við Stjórnlagaráð

Framfarafélag Fljótsdalshéraðs stendur fyrir opnum fundi í Valaskjálf, þriðjudaginn 14. júní kl. 17-22 en hann ber yfirskriftina Stefnumót við Stjórnlagaráð, Landsbyggðin og stjórnsýslan. Markmið fundarins er að ræða stjórnarskrárbreytingar frá sjónarhóli landsbyggðarinnar. Munu stjórnarskrárbreytingar leggja grunn að eðlilegum hlut landbyggðarinnar af opinberum skatttekjum og tryggja ákvörðunarrétt landssvæða í eigin málum?

Fundurinn er fyrsti fundur stjórnlagaráðs á landsbyggðinni fram til þessa og einstakt tækifæri til að ræða málefni hinna dreifðu byggða sem og þær hugmyndir sem fram hafa komið um stjórnarskrárbreytingar í vinnu ráðsins hingað til, sjá www.stjornlagarad.is.

Dagskrá

Opnun - Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshérði

  • Inngangsorð - Þórarinn Lárussonar, formaður Framfarafélags Fljótsdalshéraðs
  • Framsögur Stjórnlagaráðsfulltrúa:
  • Salvör Nordal, Ari Teitsson og Vilhjálmur Þorsteinsson.
  • Stutt kaffihlé
  • Framsögur heimamanna:
  • Smári Geirsson, Stefán Bogi Sveinsson og Stefanía Kristinsdóttir
  • Almennar umræður
  • Matarhlé
  • Pallborðsumræður: Gestirnir frá Stjórnlagaráði í öndvegi
  • Ályktanir og fundarslit
  • Fundarstjórar eru Sigrún Blöndal og Þorvaldur Jóhannsson, sem jafnframt er pallborðsstjóri. Fundarritarar eru Sigurjón Bjarnason og Helga Guðmundsdóttir.

Fleiri fréttir