Stefnumótun fyrir sjálfbæra ferðaþjónustu

Viggó Jónsson framkvæmdarstjóri skíðadeildar Tindastóls er einn nefndarmanna.
Viggó Jónsson framkvæmdarstjóri skíðadeildar Tindastóls er einn nefndarmanna.

Framkvæmdarstjórn Framsóknarflokksins hefur sett af stað vinnuhóp við að móta tillögur til stefnumótunar í ferðaþjónustu. Hópurinn er tilkominn vegna ályktunar á vorfundi miðstjórnar flokksins. Hópinn skipa fulltrúar og ferðaþjónustuaðilar með víðtæka reynslu úr ferðaþjónustu vítt og breitt um landið. Tilgangur hans er að móta tillögur sem miða að því að bæta framleiðni í greininni, tryggja sjálfbærni, auka skilvirkni, nýsköpun og þjálfun.

Ör vöxtur og stefnuleysi í ferðaþjónustu getur auðveldlega haft neikvæð áhrif á efnahags- og umhverfislega þætti. Brýnt er því að móta framtíðarstefnu sem byggir á sérstöðu landsins, náttúrunni, sameiginlegri sögu og menningu.

Vandamálin eru fjöldamörg. Auknar líkur eru á því að arðsemi minnki og fleiri láglaunastörf verði til í landinu ef ferðamönnum fjölgar meira en hægt er að sinna með góðu móti. Við ofnýtingu auðlinda er hætt við því að einsleit ferðamennska fylgi í kjölfarið með ferðamönnum sem hafa lægri kaupmátt en ella. Sérhæfingu og fjölbreytni starfa yrði ógnað í ferðaþjónustu sem og öðrum útflutningsgreinum.

Ef ferðamönnum fækkar þá óhjákvæmilega fækkar störfum sem kemur verst niður á landsbyggðinni.

Ákvarðanir um einstök mál hafa setið á hakanum of lengi. Til að mynda hvernig hægt er að ná meiri dreifingu ferðamanna um landið og hvort taka eigi gjald á ferðamannasvæðum eða ekki.

Framsóknarflokkurinn hefur talað fyrir komugjöldum. Þau hafa ekki áhrif á hvort ferðamaðurinn stoppar t.d. í þrjá daga eða þrjár vikur. Fyrirvaralausar álögur eins og lagðar voru fram nú í vor hefðu án efa komið harðast niður á landsbyggðinni sem hefur oftar en ekki þurft að horfa á eftir störfum yfir í þéttari byggðir. Þess vegna er svo brýnt að fjölga ferðamönnum á austurlandi, norðurlandi og vesturlandi því þar er sannarlega þörf á nýjum viðskiptavinum í verslun og þjónustu.

Hópurinn mun m.a. horfa til eftirfarandi atriða:

  • Hvernig getur ferðaþjónustan viðhaldið samkeppnishæfni sinni betur borið saman við önnur lönd og skapað aukin verðmæti?
  • Hvernig getur landsbyggðin búið sér til atvinnutæki og fjölgað heilsársstörfum í ferðaþjónustunni?
  • Hvaða innviði þarf að styrkja í ferðþjónustu svo greinin geti vaxið og dafnað á heilsársvísu og orðið blómleg atvinnugrein til lengri tíma?

Hópinn skipa:

Formaður: Einar Freyr Elínarson ferðaþjónustubóndi

Einar G. Bollason fyrrum framkvæmdarstjóri

Fjóla Hrund Björnsdóttir stjórnmálafræðingur, starfar við ferðaþjónustu

Gréta Björg Egilsdóttir vararborgarfulltrúi

Karl Garðarsson framkvæmdarstjóri

Lilja Sigurðardóttir sjávarútvegsfræðingur

Pétur Snæbjörnsson hótelstjóri

Sigurlaug Gissurardóttir ferðaþjónustubóndi

Snorri Eldjárn Hauksson sjávarútvegsfræðingur

Sólborg L. Steinþórsdóttir hótelstjóri

Viggó Jónsson framkvæmdarstjóri skíðadeildar

Þórður Ingi Bjarnason ferðamálafræðingur

Þórey Anna Matthíasdóttir sérfræðingur í ferðaþjónustu og leiðsögumaður

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir