Stefnumótun og framtíðarsýn í íslenskri ferðaþjónustu
Markaðsstofa Norðurlands, í samvinnu við atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið og Samtök ferðaþjónustunnar, boðar til opins fundar um mótun stefnu og framtíðarsýnar í íslenskri ferðaþjónustu á Hvammstanga í næstu viku.
Fundurinn, sem er fyrir íbúa og hagsmunaaðila í ferðaþjónustu, verður haldinn miðvikudaginn 25. mars kl 14-16 í Sjávarborg, nýjum veitingastað á Hvammstanga, á efri hæðinni við Selasetrið.
Fundurinn er öllum opinn og er einstakt tækifæri fyrir íbúa til að taka þátt í mótun stefnu og framtíðarsýnar íslenskrar ferðaþjónustu. Markmiðið er að byggja góðan grunn fyrir framtíð ferðaþjónustunnar og stuðla þannig að bættum lífskjörum í landinu. Miklar væntingar eru um víðtækt samstarf við mótun stefnunnar.
Fréttatilkynning