Stéttarfélagið Samstaða með kynningarfundi um nýjan kjarasamning
Kynningarfundir um nýjan kjarasamning milli SGS og SA og LIV og SA verða haldnir Í dag miðvikudaginn 11. maí kl. 20.00 í Samstöðusalnum Þverbraut 1, Blönduósi og í Hlöðunni, kaffihúsi Brekkugötu 2 á Hvammstanga, mánudaginn 16. maí kl. 20.00.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta á kynningarfundina til að kynna sér innihald nýgerðra kjarasamninga. Póstatkvæðagreiðsla verður um kjarasamningana, og verða kjörgögn send út í dag miðvikudaginn 11. maí.