Stíf norðanátt og mikil úrkoma
Veðurstofa Íslands vill vekja athygli á því að í nótt og á morgun ganga skil yfir landið með stífri norðanátt og mikilli úrkomu. Í nótt má búast við talsverðri rigningu austantil á landinu, en á morgun mikilli úrkomu á Norðurlandi og á Ströndum.
Ef fer sem horfir getur skapast flóða- og skriðuhætta á þessum slóðum en í aðstæðum sem þessum er ekki hægt að útiloka staðbundin skyndiflóð sem gætu valdið tjóni, t.d. á Tröllaskaga.
Veðurstofan og almannavarnadeildin beina þeim tilmælum til almennings á þessum stöðum að huga að holræsum og niðurföllum og gera viðeigandi ráðstafanir.