Stiginn vals við nemendur og starfsfólk Barnabóls

Stuttmynd um Leikskólann Barnaból á Skagaströnd var frumsýnd þegar Nes listamiðstöð var með opið hús þann 26. apríl sl. Myndin kallast Barnaból 35, A Village Waltz, eða Bæjar-Vals, og er eftir hollensku listakonuna AnneMarie van Splunter. 

Myndin var gerð í tilefni af 35 ára afmæli leikskólans og er samstarfsverkefni skólans og Nes listamiðstöðvar en Minningarsjóður hjónanna frá Garði og Vindhæli styrkir verkefnið.

Markmið AnneMarie var að festa á filmu alla núverandi og fyrrverandi nemendur og starfsfólk Barnabóls. Á myndbandinu er stiginn vals við 88 nemendur og starfsfólk skólans á tímabilinu 1977-2012

Myndbandið má skoða á heimasíðu Nes listamiðstöðvar.

Fleiri fréttir