Stjórnarkjör Stéttarfélagsins Samstöðu

Stjórn og trúnaðarráð Stéttarfélagsins Samstöðu samþykkti á fundi sínum þann 6. mars sl. tillögu uppstillingarnefndar að framboði til stjórnarkjörs í félaginu í þau embætti sem kjósa á um í ár samkvæmt lögum félagsins.

Í auglýsingu í nýjasta eintaki Sjónaukans kemur fram að framboðslistum til stjórnarkjörs í Stéttarfélaginu Samstöðu árið 2013, ásamt meðmælum a.m.k. 30 fullgildra félagsmanna, ber að skila á skrifstofu Stéttafélagsins Samstöðu, Þverbraut 1, 540 Blönduósi, merkt „Kjörstjórn“, fyrir kl. 16:00 þann 27. mars nk.

Tillaga uppstillingarnefndar er eftirfarandi:

Stjórn Stéttarfélagsins Samstöðu til 2 ára:

Varaformaður: Aðalbjörg Valdimarsdóttir,

Ritari: Vigdís Elva Þorgeirsdóttir.

Varamenn í stjórn: Einar Ásgeirsson og Baldvin S. Baldvinsson

Stjórn sjúkrasjóðs til tveggja ára: Aðalmaður: Sigríður A.Guðmundsdóttir, varamaður: Aðalbjörg Valdimarsdóttir.

 

Aðrar stjórnir og nefndir til eins árs:

Skoðunarmenn reikninga : Aðalmenn: Bryndís Pálmadóttir og Hafdís Vilhjálmsdóttir.

Varamenn: Guðrún Sigurjónsdóttir og Guðmundur Jónsson.

Kjörstjórn: Aðalmenn: Sigrún Lárusdóttir og Anna Jónasdóttir.

Varamenn: Valdimar Guðmannsson og Jóhanna Sveinsdóttir.

Stjórn Fræðslusjóðs: Aðalmenn: Ásgerður Pálsdóttir, Guðrún Sigurjónsdóttir og Ingibjörg R. Auðunsdóttir.

Varamenn: Kristín Guðbjörg Jónsdóttir, Sigrún Lárusdóttir og Guðbjörg

Þorleifsdóttir.

Stjórn Vinnudeilusjóðs: Aðalmenn: Ásgerður Pálsdóttir, Stefanía A. Garðarsdóttir og Sigríður A. Guðmundsdóttir.

Varamenn: Skúli Sigfússon, Guðmundur Finnbogason og Nanna S. Guðmannsdóttir.

Siðanefnd: Aðalmenn: Guðmundur Finnbogason og Regína Þórarinsdóttir.

Varamenn: Sigríður A. Guðmundsdóttir, Nanna S. Guðmannsdóttir og Alda Friðgeirsdóttir.

Fleiri fréttir