Stjórnarmönnum fækkað úr sjö í fimm

Önnur umræða um breytt lög um Byggðastofnun þannig að stjórnarmönnum verði fækkað úr sjö í fimm. Það var Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra sem sagði fram þessar breytingar, sem voru samþykktar í annarri umræðu með 22 atkvæðum gegn 20.

Við framlagningu málsins sagði ráðherra nauðsynlegt að fækka stjórnarmönnum, þannig færðist starfsemin nær öðrum fjármálastofnunum í landinu.

Einar K. Guðfinnsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi sagði þetta sérkennileg þar sem sparnaðurinn væri varla merkjanlegur.

Gunnar Bragi Sveinsson þingmaður Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi sagði fækkun stjórnarmanna veikja stofnunina, styrkur hennar hefði falist í breiðri yfirsýn. Byggðastofnun hefði öðru hlutverki að gegna en fjármálastofnanir. „Það sem skortir er skýr stefna ríkisstjórnarinnar í byggðamálum,“ sagði Gunnar bragi við atkvæðagreiðsluna.

Aðalfundur Byggðastofnunar verður haldinn í næstu viku.

Stjórn Byggðastofnunar var skipuð á ársfundi Byggðastofnunar 11. júní 2010 og í henni sitja:

Aðalmenn

Anna Kristín Gunnarsdóttir, formaður, Sauðárkróki

Bjarni Jónsson, varaformaður, Hólum

Arndís Soffía Sigurðardóttir, Hvolsvelli

Ásmundur Sverrir Pálsson, Selfossi

Drífa Hjartardóttir, Hellu

Herdís Á. Sæmundardóttir, Sauðárkróki

Sturla Böðvarsson, Stykkishólmi

Varamenn

Birna Lárusdóttir, Ísafirði

Bergþóra Birgisdóttir, Djúpavogi

Guðrún Erlingsdóttir, Vestmannaeyjum

Jóhanna Gísladóttir, Vopnafirði

Kjartan Þ. Ólafsson, Selfossi

Valgerður Jónsdóttir, Akureyri

Þorvaldur Tómas Jónsson, Borgarnesi

Fleiri fréttir