Stöðugildum fækkar um 54
Í svari við fyrirspurn Gunnars Braga Sveinssonar hvað sé áætlað að margir missi vinnuna á heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni nái niðurskurðartillögur ríkisstjórnarinnar fram að ganga kemur fram að á Blönduósi og Sauðárkróki er gert ráð fyrir að 54 missi atvinnu sína, mest konur.
Ekki var hægt að lesa út með Hvammstanga þar sem stofnunin þar heyrir orðið undir Akranes.
Á Sauðárkróki er gert ráð fyrir af hendi ríkisins að starfsmönnum fækki úr 145 niður í 102. Er gert ráð fyrir fækkun upp á 43 starfsmenn í 31 stöðugildi.
Á Blönduósi er gert ráð fyrir að starfsmönnum fækki úr 70 í 59 eða um 11 í átta stöðugildum.
Svarið við fyrirspurn Gunnars má lesa í heild sinni hér.