Stofnfélagi hestamannafélagsins Neista heiðraður

Hestamannafélagið Neisti í Austur-Húnavatnssýslu var stofnað árið 1943 í Dalsmynni og fagnar því 70 ára afmæli á þessu ári. Á heimasíðu félagsins segir að stofnfélagar hafi verið fjörtíu talsins, en eini eftirlifandi félaginn er Gísli Pálsson frá Hofi, þá kenndur við Sauðanes. Gísli verður 93 ára í mars og dvelur nú á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi.

„Stjórn Hestamannafélagsins Neista ákvað í tilefni af 70 ára afmæli félagsins að gera Gísla að heiðursfélaga Neista. Heimsótti stjórnin hann og afhenti honum viðurkenningu því til staðfestingar. Gísli er vel að viðurkenningunni kominn og þótt hann hafi ekki haft hestamennsku að atvinnu, þá átti hann meðal annarra stóran þátt í uppbyggingu Hólaskóla, en þar var hann formaður stjórnar í mörg ár,“ segir á Neisti.net.

Fleiri fréttir