Stofnfundur Landsbyggðarflokksins
Stofnfundur Landsbyggðarflokksins verður haldinn laugardaginn 23. febrúar nk. Þar verður kjörin stjórn flokksins og bornar upp stofnsamþykktir. Samkvæmt fréttatilkynningu er ætlunin að fundurinn verði haldinn með þátttöku fólks úr öllum þremur landsbyggðarkjördæmunum þannig að fundarstaðurinn verður ekki einn heldur nokkrir staðir á landsbyggðinni sem tengjast saman yfir netið. Vinna við stefnumótun, kynningu og skipan á framboðslista fer einnig að mestu fram á samstarfsvettvangi á netinu þannig að engu máli skiptir hvar á landinu menn búa - allir eiga að geta tekið þátt.
Eins og nafn flokksins gefur til kynna, mun Landsbyggðarflokkurinn setja málefni landsbyggðarinnar efst í forgangsröðun stefnumála. Stefnt er að því að bjóða fram framboðslista í nafni flokksins til næstu alþingiskosninga í landsbyggðarkjördæmunum þremur. Það mun þó að nokkru ráðast af áhuga fólks í viðkomandi kjördæmum til að vinna að framboðsmálum og er æskilegt að áhugasamir gefi sig fram sem fyrst.
Byggðabandalag og hagsmunasamtök landsbyggðarbúa
Svo virðist sem gömlu og nýju flokkarnir ætli málefnum landsbyggðarinnar ekki mikið pláss í stefnuskrám sínum fyrir næstu kosningar - ef þá nokkuð. Kannski ekki að furða hjá flokkum sem oftast eiga uppruna sinn og lögheimili á höfuðborgarsvæðinu. Markmiðið er að Landsbyggðarflokkurinn verði einskonar byggðabandalag, grasrótarhreyfing og hagsmunasamtök almennings á landsbyggðinni sem vill skapa sér betri lífsskilyrði og njóta jafnræðis á við aðra landsmenn.
Í Landsbyggðarflokknum á heima fólk sem hefur ekki þolinmæði til að bíða lengur eftir því að stjórnmálaflokkarnir móti sér alvörustefnu í byggðamálum. Fólk sem nú vill taka málin í eigin hendur og hætta að treysta á staðnaða pólitíkusa sem eyða dýmætum tíma í óþarfa málþóf og leikaraskap á Alþingi.
Markmið Landsbyggðarflokksins
Markmiði Landsbyggðarflokksins er best lýst með eftirfarandi setningu sem tekin er úr hugmyndum um málefnalista flokksins: „Landsbyggðarflokkurinn elskar landsbyggðina og vill blása í hana lífi svo hún megi blómstra til hagsbóta fyrir alla þjóðina.“
Hugmyndir að málefnum sem Landsbyggðarflokkurinn mun mögulega beita sér fyrir má finna á vefsíðunni www.landsbyggdin.is og á www.facebook.com/Landsbyggdarflokkurinn.