Stólarnir fengu á baukinn í rennblautri Víkinni
Tindastóll og Víkingur áttust við í kvöld á rennblautum velli í Víkinni. Heimamenn komust yfir strax á fyrstu mínútu og eftir það var róðurinn Stólunum erfiður. Þrátt fyrir að eiga nokkur góð færi náðu Tindastólsmenn ekki að skora í leiknum en það gerðu Víkingar fimm sinnum en þetta var hinsvegar fyrsta stóra tap Stólanna í 1. deildinni í sumar.
Hjörtur Júlíus Hjartarson kom Víkingum í 1-0 með marki á fyrstu mínútu og á næstu 15 mínútum hefði hann getað bætt við tveimur mörkum til viðbótar. Leikurinn var fjörugur á rennblautum vellinum og Stólarnir fengu fínt færi eftir 20 mínútna leik en Beattie skaut framhjá eftir sendingu frá Arnari Sig. Stuttu síðar fékk Max Touloute færi en klikkaði. Sigurður Egill Lárusson gerði annað mark Víkinga á 28. mínútu og höfðu aðstæður á vellinum talsverð áhrif á skopp boltans þannig að Seb Furness kom ekki vörnum við. Bæði lið fengu færi fyrir hlé en staðan 2-0 í hálfleik.
Heimamönnum gekk betur að skapa sér færi í upphafi síðari hálfleiks. Þeir gerðu út um leikinn um miðjan hálfleikinn en þá skoruðu þeir þrjú mörk á 10 mínútum. Á 57. mínútu skaut Kjartan Dige Baldursson boltanum í leikmann Tindastóls eftir hornspyrnu og þaðan skaust boltinn í þverslána og inn. Fimm mínútum síðar komst Aaron Spear inn fyrir vörn Tindastóls og skoraði af öryggi. Það var síðan Hjörtur Júlíus sem gerði fimmta mark heimamanna þegar hann skallaði sendingu frá Aaron Spear í þverslána og inn. Tindastólsmenn komust næst því að skora þegar Steven Beattie tók aukaspyrnu langt úti á velli þegar skammt var eftir af leiknum en setti boltann í skeytin og lokatölur því 5-0.
Þetta er fyrsta stóra tap Stólanna í sumar og kannski margir hissa á að það hafi ekki komið fyrr, en Tindastólsmönnum var fyrir mót spáð afleitu gengi. Nú er bara að girða sig í brók í einum laufgrænum hvelli og mæta grimmir í næsta leik. Leikmenn geta huggað sig við að þau þrjú lið sem eru fyrir neðan Stólana í deildinni töpuðu öll í kvöld. Nú á laugardaginn koma Fjölnismenn í heimsókn og á þriðjudag sækja Stólarnir Þór Akureyri heim. Áfram Tindastóll!