„Stolt af því að vera Skaggar“ – Skagganum skotið af stað kl. 18

Um helgina verður öllu tjaldað til á Skagaströnd því heimamenn efna til nýrrar bæjarhátíðar sem hefur hlotið nafngiftina Skagginn. Skagganum verður skotið af stað kl. 18 í kvöld og verður fjölbreytt og fjölskylduvæn dagskrá fram á sunnudag.

„Skagstrendingar voru oft kallaðir Skaggarnir af öðrum bæjarfélögum ... og ekki endilega í jákvæðri merkingu. Okkur fannst því tilvalið að hátíðin okkar bæri þetta nafn - að við komum saman, gerum okkur glaðan dag, stolt af því að vera Skaggar og það hefur verið leiðarljós okkar við skipulagningu,“ sagði Sigurlaug Ingimundardóttir, formaður Tómstunda- og menningarmálanefndar Svf. Skagastrandar, í viðtali í Feyki vikunnar þar sem fjallað er nánar um hátíðina.

Dagskráin er eftirfarandi:

Föstudagur 14. ágúst

10:30 - 24:00         Bjarmanes Café

Myndlistarsýningin „Eitt og annað“ – Herdís Þ. Jakobsdóttir.

Ljósmyndasýningin „Skepna“ – Vigdís H. Viggósdóttir.

13:00 - 17:00         Árnes, elsta húsið á Skagaströnd

Sýningin „Alþýðuheimili 1900-1920“.

13:00 - 18:00         Spákonuhof

Sýning- Þórdís spákona. Spáð í spil, bolla, rúnir og lófalestur.

18:00                      Skagganum skotið af stað með fallbyssu við Bjarmanes Café

18:30 - 21:00         Útigrill á Borginni og hlaðborð inni

Tilboð á grillveislu í tilefni dagsins.

21:00 - 22:00         Ljóðaganga um Höfðann

Gengið um Höfðann og stansað á nokkrum stöðum til að lesa ljóð.

Lagt af stað frá Tjaldklaufinni.

21:00 - 24:00         Kósýkvöld í sundlauginni

Boðið upp á kaffi – sumarsvala og stemningu,

Frá kl. 22 verður 16 ára aldurstakmark.

 

23:00 - 01.00         Lifandi tónlist á Borginni (opið til kl. 03)

Gummi Jóns og Hjörtur Guðbjarts leika og syngja (frítt inn).

 

Laugardagur 15. ágúst

10:30 - 23:00         Bjarmanes Café

Myndlistarsýningin „Eitt og annað“ – Herdís Þ. Jakobsdóttir.

Ljósmyndasýningin „Skepna“ – Vigdís H. Viggósdóttir.

10:30 - 11:30         Froðudiskó á Kaupfélagstúni

10:30 - 12:00                   Björgunarsveitin Strönd sýnir bíla og búnað

Við Björgunarsveitarhúsið Bjarnabúð.

10:00 - 11:00         Sjósund við Höfðann, mæting við sundlaug

Sundlaugin er opin kl 10:00 – 12:00. Lokað eftir hádegi.

12:00 – 13.00         Víðavangshlaup Umf. Fram við Höfðaskóla

Skráning á staðnum.

12:00 - 12:30         Björk

Skógræktarfélagið gróðursetur bjarkir í skjóli Spákonuhofs.

12:00 – 14:00        Samkaup Úrval býður upp á grillaðar pylsur

13:00 - 18:00         Sveitamarkaður í tjaldi við Árnes

Skráning söluaðila; gudlaug.gretars@gmail.com, 893 2645.

13:30 – 14:30        Opið listaverk í Bjarmanesi

Linda - listamaður í Nes byrjar á mynd sem gestir geta tekið þátt í.

 

14:00 – 17:00        Kaffihlaðborð í Bjarmanes Café, með gamaldags ívafi

Verð 1.800 kr; 6-11 ára 750 kr.; 0-5 ára frítt.

Flaututónlist Sibylle frá Nes listamiðstöð.

14:00 - 16:00         Grímugerð og andlitsmálun (Bjarmanes Café, neðri hæð)

13:00 - 17:00         Árnes, elsta húsið á Skagaströnd

Sýningin „Alþýðuheimili 1900-1920“.

13:00 - 18:00         Spákonuhof

Spáð í spil, bolla, rúnir og lófalestur.

14:00 – 14:30        Spákonugjörningurinn „Rúnakast – spáð í framtíðina“

Við Spákonuhofið.

14:00 - 15:00         Snarfari – hópreið hestamanna og teymt undir börnum

Teymt á Hnappstaðatúni.

13:00 – 15:00        Minigolfmót  á svæðinu fyrir ofan Bjarmanes Café

Spilaðar sex holur, verðlaun fyrir 1. sæti – frítt.

„Hola í höggi“ á Hólanesi

Slegið á haf út til að hitta í fljótandi „holu“ (1.000 kr./3 boltar).

13:30 – 17:00        Hoppukastali á Hólanesi

14:00 – 17:00        Loftbolti á sparkvellinum (500 kr. / skipti).

13:00 - 13:30         Söngvaborg – barna og fjölskylduskemmtun

Skemmtunin verður á útisviði á Hólanesi.

15:00 - 18:00         Opin vinnustofa í Nes listamiðstöð

Kennsla í gerð heimatilbúinna myndavéla (12 ára og eldri).

21:00 - 23:00         Tónleikar á útisviði á Hólanesi

Ungir tónlistarmenn hefja skemmtunina og nokkrir eldri og reyndari taka einnig lagið. Guðmundur Egill, Gummi Jóns og fl. Dansatriði frá Nes – Cristine og Beate.

23:00 - 24.00         Varðeldur á Hólanesi

Varðeldasöngvar og kvöldstemning.

23:00 - 03:00         Ball á Borginni

Hljómsveitin Trukkarnir leikur fyrir dansi (2.000 kr).

 

Sunnudagur 16. ágúst

11:30 – 14:00        Brunch á Borginni

13:00 – 16:00        Gengið á Spákonufell

Lagt af stað frá golfvelli – leiðsögn.

13:00 - 21:00         Bjarmanes Café

Myndlistarsýningin „Eitt og annað“ – Herdís Þ. Jakobsdóttir.

Ljósmyndasýningin „Skepna“ – Vigdís H. Viggósdóttir.

13:00 - 17:00         Lummukaffi í Árnesi, elsta húsinu á Skagaströnd

Sýningin „Alþýðuheimili 1900-1920“.

13:00 - 18:00         Spákonuhof

Spáð í spil, bolla, rúnir og lófalestur.

Fleiri fréttir