Stórbingó í Húnavallaskóla
Hið árlega stórbingó 9. bekkjar Húnavallaskóla verður haldið í kvöld, föstudaginn 2. mars en samkvæmt fréttatilkynningu verður „fullt af flottum og veglegum vinningum. Tombólan verður auðvitað á sínum stað, þannig að allir fá eitthvað!! Það verða ENGIN NÚLL!!,“ eins og það er orðað í tilkynningunni.
Miðaverð:
14 ára og eldri 1500 kr.
7 – 13 ára 500 kr.
Ókeypis fyrir börn 6 ára og yngri.
Aukaspjöld kosta 200 kr.
Að bingóinu loknu verður boðið upp á kaffihlaðborð, sem kostar 1000 kr. fyrir fullorðna, 500 kr. fyrir 13-16 ára en frítt fyrir 12 ára og yngri. Húsið opnar kl. 19:30 og bingóið hefst kl. 20:00. Eftir bingóið verður diskótek til kl. 00:30.
Ath. ekki er tekið við greiðslukortum