Stórhríð víða á Norðurlandi vestra
Mjög slæmt veður er á Norðurlandi. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er stórhríð á milli Blönduóss og Skagastrandar, við utanverðan Skagafjörð og á Tröllaskaga. Stórhríð er einnig á Öxnadalsheiði.
Á Ströndum og Norðurlandi vestra er norðaustan 15-23 m/s og snjókoma eða él, hvassast vestantil. Samkvæmt spá Veðurstofunnar verður austan 10-18 á morgun og úrkomulítið. Frost 3 til 9 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á fimmtudag og föstudag:
Austan 10-18 m/s, en 18-23 m/s allra syðst á landinu. Él A-til og með S-ströndinni, en yfirleitt úrkomulaust á N- og V-landi. Frost 0 til 8 stig, mildast syðst.
Á laugardag:
Minnkandi austanátt. Dálítil él A-til, en bjart með köflum V-lands. Hiti breytist lítið.
Á sunnudag, mánudag og þriðjudag:
Útlit fyrir fremur hæga norðlæga eða breytilega átt. Bjart veður S- og V-til á landinu, en skýjað og úrkomulítið með N- og A-ströndinni. Frost 2 til 12 stig, kaldast inn til landins.