Stormur NV-lands í nótt

Lognið ætlar að fara hratt yfir Strandir og Norðurland vestra næsta sólahringinn en Veðurstofa Íslands spáir stormi þar í nótt. Íbúar svæðisins ættu að huga að lausum hlutum eins og garðhúsgögnum og trampólínum sem hafa gengt sínu hlutverki þetta árið og koma þeim fyrir á öruggum stað..

 

Spáin er annars á þessa leið: Suðaustan 8-15 og rigning, en sunnan 10-18 og úrkomuminna síðdegis. Hiti 8 til 15 stig. Sunnan og síðar suðvestan 18-23 og skúrir í nótt, dregur smám saman úr vindi á morgun. Kólnandi veður. Búist er við stormi á SV- og V-landi síðdegis, en NV-lands í nótt.

Veðurhorfur á landinu næstu daga.

Á sunnudag:
Sunnanátt, víða 8-13 m/s og rigning, einkum S-til. V-lægari og skúrir síðdegis. Hiti 7 til 13 stig.

Á mánudag:
Norðaustan og norðan 8-13 m/s og rigning á Vestfjörðum og við N-ströndina, annars hægari vestanátt og skúrir. Hiti 3 til 12 stig, mildast SA-lands.

Á þriðjudag og miðvikudag:
Norðanátt og svalt í veðri. Slydda eða rigning og síðar él fyrir norðan, en úrkomulítið syðra.

Á fimmtudag:
Útlit fyrir austanátt með smávætu S-lands.

Fleiri fréttir