Stormviðvörun í dag með 15-23 m/s

Veðurstofa Íslands varar við stormi NV-til á landinu í dag með meðalvindhraða meiri en 20 m/s, en víða um land í kvöld og á morgun. Í dag verður norðan og norðaustan 15-23 m/s, hvassast vestan til. Lengst af snjókoma og frost 0 til 4 stig.

Á heimasíðu Vegagerðarinnar segir að annars staðar en á Vestfjörðum, Ströndum og í Dölum fer veður heldur skánandi nú fyrir hádegi. Fer aftur ört versnandi um og upp úr miðjum degi með mikilli veðurhæð og vaxandi ofanhríð um allt norðan- og austanvert landið með skafrenningi og afar litlu skyggni.

Færð á Norðurlandi vestra um kl. 9 þann 31. október 2012.

Í Húnavatnssýslum eru hálkublettir víðast hvar en greiðfært á Vatnsnesinu og hált vestan til á Skaganum. Hált er yfir Vatnsskarðið og frá Varmahlíð til Sauðárkróks. Krapi eða snjór er frá Sauðárkróki til Hofsóss, í Hegranesinu og Blönduhlíð. Hált er í Fljótunum en greiðfært austan til á Skaganum og fram í Lýtingsstaðahrepp.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á föstudag:
Norðan 18-25 m/s og snjókoma, en úrkomulítið S-lands. Mjög snarpir vindstrengir við fjöll. Frost 0 til 5 stig.

Á laugardag:
Norðan 15-23 m/s og snjókoma, en bjartviðri S-lands. Lægir V-til um kvöldið og styttir upp. Áfram kalt í veðri.

Á sunnudag:
Norðvestan 13-18 m/s A-lands framan af degi og él, en annars 8-13 og léttskýjað. Frost 0 til 10 stig, mest inn til landsins.

Á mánudag og þriðjudag:
Útlit fyrir suðvestanátt með rigningu S- og V-lands, en annars úrkomulítið. Hlýnar í veðri.

 

Fleiri fréttir