Strætó-„appið“ fór í loftið í gær
Í gær kynnti Strætó bs nýja þjónustu fyrir farþega sína, nýtt forrit eða „app“ fyrir Android og iPhone síma og innan skamms verður væntanleg útgáfa fyrir Windows Mobile síma. Forritið er hannað til að auðvelda viðskiptavinum Strætó að komast leiðar sinnar. Þannig er t.d. hægt að finna bestu og stystu leiðina á áfangastað, sjá staðsetningu vagna í rauntíma, leita eftir brottförum vagna frá ákveðnum biðstöðvum – í rauntíma, og margt fleira. Kemur þetta ekki síður vel fyrir farþega sem nota vagnana einhversstaðar milli Akureyrar og Reykjavíkur.
Farþegar geta ennfremur vistað í forritið þær biðstöðvar sem þeir notar mest og þá birtir appið á skýran hátt hvaða vagnar eiga leið um þær biðstöðvar og hversu langt er í næsta vagn.
Í náinni framtíð geta farþegar nýtt forritið til að fá nýjustu fréttir af því sem Strætó þarf að koma á framfæri hverju sinni, eins og breytingar á áætlun t.d. vegna vegaframkvæmda eða veðurs.
Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs sagði við þetta tilefni: „Það er stefna Strætó bs að auðvelda aðgengi farþega að ferðatengdum upplýsingum sem eru mikilvægur liður í reglubundinni notkun okkar þjónustu. Nú þegar hefur vefurinn okkar sannað gildi sitt sem slíkur miðill og nýja appið okkar er þannig enn ein leiðin til að nálgast þessar upplýsingar með því einu að hafa snjallsíma við höndina. Fyrirhugað er að þróa og efla bæði þessi viðmót enn frekar. Þannig er ráðgert að bjóða upp á kaup á fargjöldum með snjallsímanum á næstu misserum ásamt öðrum nytsamlegum nýjungum.“
Forritið er öllum að kostnaðarlausu og er hægt að sækja á slóðinni: http://www.straeto.is/app