Strætó milli Akureyrar og Reykjavíkur

Reykjavíkurborg hefur fyrir hönd Strætó bs. auglýst eftir tilboðum frá verktökum í akstur almenningsvagna á milli Reykjavíkur og Akureyrar annars vegar og hins vegar á milli Akureyrar og Reykjavíkur. Ekið verður um Þverárfjall í stað Vatnsskarðs og aksturstími á að styttast.

Nýtt fyrirkomulag tekur gildi í haust og hefur m.a. í för með sér styttri stopp og styttri aksturstíma, auk nýrra leiða á köflum. Sérleyfisakstur eins og verið hefur til fjölda ára, fellur þá niður. Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu og skila þarf inn tilboðum fyrir 15. maí næstkomandi.

Frá þessu er sagt á Húna.is en þar er vitnað í frétt í Morgunblaðinu. „Þetta er angi af sama meiði og hefur verið að gerast á Suðurlandi. Ríkið er að flytja yfirumsjón á almenningssamgöngum til landshlutasamtaka sveitarfélaganna. Þarna er um að ræða samstarf með sveitarfélögum á Vesturlandi og Norðurlandi vestra og aðstoð við útboð á akstri á þessum svæðum,“ segir Reynir Jónsson, forstjóri Strætó bs. í samtali við Morgunblaðið.

Eknar verða aðrar leiðir en áður á norðurleiðinni, ekið gegnum Akranes og norður fyrir Akrafjall, ekki verði komið við á Hvammstanga heldur notast við annan flutning þar frá þjóðveginum og í stað þess að aka eftir Langadal og yfir Vatnsskarð muni rútan fara yfir Þverárfjall og gegnum Sauðárkrók og þaðan til Akureyrar um Öxnadalsheiði.

Fleiri fréttir