Strandminjar í hættu - lífróður

Áhugafólk um minjar í hættu og Minjastofun Íslands boða til ráðstefnu um málefni minja sem eru í hættu vegna ágangs sjávar. Ráðstefnan ber heitið:Strandminjar í hættu – lífróður og munu innlendir og erlendir fyrirlesarar fjalla um minjar við ströndina, stöðu mála og hvað hægt er að gera til að takast á við þróunina.

Mikill fjöldi minja um allt land er í stórhættu vegna sjávarrofs. Þær minjar sem ekki síst eru í hættu eru minjar um sjávarútveg og sjósókn Íslendinga frá landnámi og allt fram á 20. öld. Um er að ræða gríðarlegt magn ómetnalegra menningarverðmæta sem eru nær órannsökuð og munu að óbreyttu hverfa í sjóinn.

Ráðstefnan verður haldin í salnum Kötlu á Hótel Sögu laugardaginn 18. apríl kl. 13:00-16:30. Allir eru velkomnir og hvetjum við sem flesta til þess að koma og fræðast um alvarlega stöðu strandminja á Íslandi.

Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um ráðstefnuna og dagskrá á heimasíðu Minjastofnunar Íslands: www.minjastofnun.is og á Fésbókarsíðu ráðstefnunnar sem finna má á www.facebook.com undir nafninu Strandminjar í hættu – lífróður.

Fréttatilkynning frá Minjastofnun Íslands

Fleiri fréttir