Strengjadeildin með Kökubasar
feykir.is
Skagafjörður
12.12.2008
kl. 08.31
Nokkur börn úr strengjadeild Tónlistarskóla Skagafjarðar ætla að spila nokkur lög á fiðlur í Skagfirðingabúð á morgun kl. 15. Enn fremur ætla þau að vera með kökubasar sem fjáröflun fyrir krakkana að fara á allskonar námskeið en þau eru ný búin að vera í Reykjanesbæ þar sem voru um 300 fiðlunemendur.
Í byrjun næsta árs er námskeið á Akureyri sem nefnist Vetrartónar. Svo er sameiginlegur strengjadagur nemenda á Norðurlandi 17. Janúar í Varmahlíð, þá koma allir strengjanemendur á Norðurlandi og verða með risatónleika.