Strönd kaupir björgunarbát

Björgunarsveitin Strönd á Skagaströnd keyptu björgunarbát af Björgunarsveitinni Ársæli á Höfuðborgarsvæðinu í gær. „Eftir skoðun og leiðbeiningar á tækjum var gengið frá kaupum og bátnum pakkað undir segl - og drifið sig aftur norður,“ segir á facebook-síðu Ársæls.

Samkvæmt síðunni skruppu félagarnir í Björgunarsveitinni Strönd suður yfir Kjöl í gær og renndu í hlað í Gaujabúð, á Seltjarnarnesi, á mínútunni 17 til að skoða og kaupa björgunarbátinn.

Ársæll óskaði þeim loks til hamingju með bátinn, og það gerir Feykir einnig.

Hér má sjá fleiri myndir frá kaupunum.

Fleiri fréttir