Stuðningur við nýliðun í kúabúskap
Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ásamt Bændasamtökum Íslands og Landsambandi kúabænda undirritað viljayfirlýsingu um stuðning við nýliðun í mjólkurframleiðslu. Í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarflokkanna er kveðið á um stuðning við nýliðun í bændastétt og gildandi búvörusamningur gerir sömuleiðis ráð fyrir stuðningi við nýliðun.
Yfirlýsingin sem undirrituð var í dag 29. desember er svohljóðandi:
Sameiginleg yfirlýsing sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Bændasamtaka Íslands og Landssambands kúabænda um stuðning við nýliðun í mjólkurframleiðslu.
Með vísan í 1. grein (tl. 1.5) samnings um starfsskilyrði mjólkurframleiðslu, dags. 10. maí 2004, höfum við orðið sammála um að ráðuneytið og Bændasamtök Íslands, ásamt Landssambandi kúabænda, leiti samkomulags um að verja hluta af samningslið 6.4 (Óframleiðslutengdar og/eða minna markaðstruflandi greiðslur) til stuðnings við nýliðun í mjólkurframleiðslu á árinu 2012. Aðilar skipi sameiginlega starfshóp á fyrstu dögum nýs árs til að útfæra nánar með reglum hvernig stuðningi þessum verði varið og skal hópurinn skila af sér tillögum í janúarmánuði 2012.