Stuðningur við samningaleiðina eykst og mælist nú 57,4%

Stuðningur við svokallaða samningaleið í sjávarútvegi vex og nú eru 57,4% kjósenda fylgjandi því að hún verði farin. Þetta eru niðurstöður nýrrar könnunar sem fyrirtækið Markaðs- og miðlarannsóknir, MMR, vann fyrir LÍÚ dagana 3. -5. nóvember sl. Í sambærilegri könnun sem unnin var í byrjun október mældist fylgi við samningaleiðina 51,7%.

Spurningin sem lögð var fyrir þátttakendur hljóðaði þannig: „Meirihluti starfshóps, sem sjávarútvegsráðherra skipaði til þess að endurskoða lög um stjórn fiskveiða, lagði í byrjun september 2010 til að farin yrði svokölluð samningaleið í sjávarútvegi. Samningaleiðin byggir á því að ríkið geri samninga við núverandi handhafa fiskveiðiheimilda um veiðiheimildir gegn gjaldi. Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því að þessi leið verði farin?"

Alls sögðust 57,4% vera mjög eða frekar hlynntir þessari leið en 42,6% sögðust mjög eða frekar andvíg því að hún væri farin. Svör fengust frá 813 manns en 40% svarenda tóku ekki afstöðu til spurningarinnar. Það er nánast sama hlutfall og í fyrri könnuninni.

Könnunina má lesa hér í heild.

/ LÍÚ

Fleiri fréttir