Styrkir sem geta skipt sköpum

Kynningafundur um IPA Evrópustyrki var haldinn í Miðgarði í Varmahlíð sl. þriðjudag en gafst þar fólki tækifæri til að kynna sér styrkina til hlítar. Um er að ræða töluverða fjármuni og geta þeir skipt sköpum fyrir þá sem vilja koma góðu verkefni af stað en til ráðstöfunar eru u.þ.b. 8,3 milljónir evra og er stefnt að því að verja þeim til allt að 20 verkefna um allt land á árinu 2013. Lágmarksstyrkur til hvers verkefnis er 200 þúsund evrur eða 31,2 millj.kr. og að hámarki ein milljón evra eða 156 millj.kr. (miðað við gengi 6.9.2012).

Frá kynningarfundi um IPA Evrópustyrki Miðgarði 4. sept. 2012

Það var Anna Margrét Guðjónsdóttir frá AM ráðgjöf sem útskýrði hvernig fyrirkomulagið er í kringum styrkina og hvaða skilyrði umsóknirnar þurfa að uppfylla en umsóknarfresturinn er 30. nóvember 2012.

Styrkjum er ætlað að undirbúa mögulega þátttöku í uppbyggingasjóðum ESB komi til aðildar að sambandinu en styrkirnir eru óafturkræfir, m.ö.o. óháðir aðild að ESB.

Auglýst er eftir verkefnum á sviði atvinnuþróunar og byggðarmála annars vegar og velferðar- og vinnumarkaðsmála hins vegar. Styrkveitingarnar koma úr tveimur sjóðum; ERDF (European Regional Development Fund) sem styrkir fjárfestingar í innviðum svæða og félagsmálasjóðurinn ESD (European Social Fund) sem styrkir fjárfestingu í mannauði.

Þeir sem misstu af kynningafundinum sl. þriðjudag geta farið á fundi á eftirfarandi stöðum:

  • Grand hóteli Reykjavík 10. september kl. 13-17:30
  • Háskólanum á Akureyri 11. september kl. 13-17:30
  • Hótel Héraði á Egilsstöðum 12. september kl. 13-17:30

Hægt verður að fylgjast með fundinum þann 1. september á vefsíðu Byggðastofnunar.

Fundirnir eru öllum opnir og aðgangur ókeypis en tilkynna þarf þátttöku á netfangið ipa@byggdastofnun.is með a.m.k. sólarhrings fyrirvara.

Frekari upplýsingar um IPA og umsóknargögn má sjá hér.

Fleiri fréttir