Styrkir úr Húnasjóði afhentir

Byggðarráð Húnaþings vestra samþykkti á dögunum námsstyrki úr Húnasjóði en fimmtán umsóknir höfðu borist. Átta styrkir voru samþykktir í ár og nemur styrkfjárhæð á hvern styrkþega 100.000 krónum. Afhending styrkjanna fór fram þann 20. ágúst síðastliðinn á Kaffihúsinu Hlöðunni á Hvammstanga. Það er Húni.is sem greinir frá.

Húnasjóður var stofnaður af Ásgeiri Magnússyni og Unni Ásmundsdóttur er ráku Alþýðuskólann á Hvammstanga 1913-1920. Markmið sjóðsins er að stuðla að fag- og endurmenntun íbúa sveitarfélagsins. Styrkir hafa verið veittir úr sjóðnum frá árinu 2001.

Byggðarráð samþykkir að veita eftirtöldum umsækjendum styrk úr Húnasjóði árið 2012:

  • Auðunn Ingi Ragnarsson, nemi í landfræði, Kollsá 2
  • Benóný Þór Björnsson, nemi í sálfræði, Hvammstanga
  • Daníel Trausti Róbertsson, nemi í uppeldis- og kennslufræðum, Hvalshöfða
  • Leifur George Gunnarsson, nemi í hestafræðum, reiðkennaranámi, Hvammstanga
  • Sigurður Hólm Arnarson, nemi í leiklistarnámi, Hvammstanga
  • Sigurður Helgi Oddsson, nemi í tónsmíðum, píanóleik og hljómsveitarstjórnun, Hvammstanga
  • Unnur Helga Marteinsdóttir, nemi í leikskólakennarafræðum, Hvammstanga
  • Þórunn Helga Þorvaldsdóttir, nemi í leikskólakennarafræðum, Akurbrekku

/Húni.is

Fleiri fréttir