Styrkir úr fornminja- og húsafriðunarsjóði til Norðurlands vestra

Úthlutað hefur verið úr húsafriðunarsjóði og fornminjasjóði fyrir árið 2016. Alls fengu 158 verkefni styrk úr húsafriðunarsjóði og 26 verkefni styrk úr fornminjasjóði. Samkvæmt vef Minjastofnunar eru þau verkefni sem fengu styrk einungis hluti þeirra verkefna sem sóttu um en alls bárust 282 umsóknir í húsafriðunarsjóð og 75 umsóknir um styrki í fornminjasjóð.
Til fornleifarannsókna voru veittir styrkir fyrir 45.150.000 kr. Fornleifadeild Byggðasafns Skagfirðinga hlaut þrjár styrki en einnig hlaut Antikva ehf. styrk til úrvinnslu gagna frá fornleifarannsóknum á Kolkuósi í Skagafirði. Styrkirnir eru eftirfarandi:
- Skagfirska kirkjurannsóknin 3. áfangi: Uppgröftur kirkjugarðs í Keflavík - Hegranesi Fornleifadeild Byggðasafns Skagfirðinga 3.000.000 kr.
- Kolkuós, höfn og verslunarstaður á víkingaöld og miðöldum. Úrvinnsla uppgraftargagna frá 2003-2012 Antikva ehf. 2.500.000 kr.
- Eyðibyggð og afdalir Skagafjarðar IX. áfangi: Byggðasögurannsókn Fornleifadeild Byggðasafns Skagfirðinga 1.500.000 kr.
- Strandminjar við vestanverðan Skagafjörð 2. áfangi Fornleifadeild Byggðasafns Skagfirðinga 1.300.000 kr.
Fjöldi umsókna í Húsafriðunarsjóð var 262, en veittir voru 158 styrkir. Til úthlutunar var 131 millj. kr., en sótt var samtals um styrki að upphæð 940 millj. króna. Veittir styrkir á Norðurlandi vestra eru eftirfarandi:
FRIÐLÝSTAR KIRKJUR
- Blönduóskirkja gamla Brimslóð Blönduósi 1 millj.kr.
- Hofskirkja Hof-Höfðaströnd Hofsós 2,5 millj.kr.
- Reynistaðarkirkja Reynistað Skagafjörður 300 þús.kr.
- Staðarkirkja Staður 1 millj.kr.
FRIÐUÐ HÚS OG MANNVIRKI
- Tilraun Aðalgata 10 Blönduós 300 þús.kr.
- Læknishúsið Skógargata 10b Sauðárkrókur 1 millj.kr.
- Sauðá Skógargata 17b Sauðárkrókur 400 þús.kr.
- Ártún Suðurgata 14 Sauðárkrókur 400 þús.kr.
- Áshús Glaumbær Varmahlíð 500 þús.kr.
- Tyrfingsstaðir Akrahreppi Varmahlíð 1 millj.kr.
- Gamla íbúðarhúsið á Höfða á Höfðaströnd Hofsós 400 þús.kr.
- Hraunshús Fljótum Fljót 700 þús.kr.
BYGGÐA- OG HÚSAKANNANIR
- Blönduós - byggða- og húsakönnun í dreifbýli 700 þús.kr.
- Húsa- og byggðakönnun í Húnavatnshreppi 700 þús.kr.