Styrktartónleikar fyrir Matthildi
Tónleikar til styrktar Matthildi Haraldsdóttur verða haldnir í Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, fimmtudaginn 9. ágúst kl. 20. Matthildur fæddist í desember 2009 í Salzburg í Austurríki en nokkrum klukkustundum eftir fæðingu kom í ljós að hún er með afar sjaldgæfan og flókinn hjartagalla og hefur hún þurft að gangast undir margar erfiðar hjartaaðgerðir á sinni stuttu ævi, nú síðast í júlí og ágúst.
Á styrktarsíðu fyrir Matthildi á Facebook segir að Matthildur hafi tekið hæg framfararskref undanfarna daga eftir hjartaaðgerð sem hún fór í 3. ágúst sl. Hún er nú undir stöðugu eftirliti lækna eftir átök síðustu vikna og ljóst er að bataferlið getur tekið langan tíma.
Foreldrar Matthildar, tónlistarfólkið Harpa Þorvaldsdóttir og Haraldur Ægir Guðmundsson, dvelja nú hjá Matthildi á Herzzentrum sjúkrahúsinu í München en ekki er vitað hversu lengi þau munu koma til með að þurfa að dvelja þar.
Haraldur starfar sem kontrabassaleikari og húsamálari og Harpa er nýútskrifuð úr Mozarteum tónlistarháskólanum í Salzburg. Saman eiga þau einnig dótturina Halldóru Björgu sem er 8 ára.
Vinir hjónanna efna til styrktartónleikanna til þess að styðja við bakið á ungu fjölskyldunni á þessum erfiðu tímum. Flytjendurnir koma úr mismunandi áttum tónlistarbransans og mega gestir því eiga von á skemmtilegri blöndu tónlistaratriða.
Miðaverð er miðað við 2.000 krónur en framlög eru að sjálfsögðu frjáls. Þeim sem sjá sér ekki fært um að mæta á tónleikana en vilja styðja við fjölskylduna, er bent á eftirfarandi reikningsnúmer.
Landsbanki Íslands
0159-05-403600
Kt:160580-5429