Styttist í Hreppaþorrablót 2013
Hið árlega Hreppaþorrablót verður haldið í Félagsheimilinu á Blönduósi, laugardaginn 9. febrúar nk.Veislustjórn og ýmisleg sprell verður í höndum Ljótu-hálfvitanna en Hörður bassi og Sigurlaug Vordís leika fyrir dansi.
Frestur til að panta miða er runninn út en miðar verða afhentir og seldir í anddyri félagsheimilisins föstudaginn 8. febrúar frá kl. 16.00 til kl. 18.00 og við upphaf þorrablótsins, ef með þarf annars gæti þurft að takmarka fjölda gesta ef aðsókn verður mjög mikil segir í tilkynningu frá þorrablótsnefnd.