Styttist í Húnavöku
Húnavaka, hin árlega fjölskyldu- og menningarhátíð Austur-Húnvetninga verður formlega sett fimmtudaginn 18. júlí næstkomandi klukkan 18:30 fyrir framan Hillebrantshús í gamla bænum þar sem Hafíssetrið er til húsa. Bæjarbúar ætla að taka forskot á sæluna degi fyrr með því að skreyta Blönduósbæ hátt og lágt.
Margt verður í boði á Húnavöku á Blönduósi um næstu helgi:
Ljósmyndasýning á Húnavöku
Fimmtudaginn 18. júlí, opnar ljósmyndasýning í íþróttahúsinu á Blönduósi. Þar ætlar áhugaljósmyndararnir Bjarni Freyr Björnsson, Höskuldur Birkir Erlingsson, Jón Sigurðsson, Lárus Bjarnason og Róbert Daníel Jónsson að sýna myndir sínar. Sýningin er sölusýning og eru ljósmyndirnar teknar í Húnaþingi. Opið verður alla Húnavökuhelgina, frá klukkan 8 til 21 fimmtudag og föstudag og frá klukkan 10 til 20 laugardag og sunnudag.
Grill í gamla bænum. Mynd: Húni.is
Opna Gámaþjónustumótið – Húnavökumót í golfi
Opna Gámaþjónustumótið í golfi verður haldið á Vatnahverfisvelli við Blönduós laugardaginn 20. júlí næstkomandi. Keppt verður í punktakeppni í karla- og kvennaflokki án forgjafar og í punktakeppni með forgjöf, einn almennur flokkur. Ræst verður út samtímis á öllum teigum klukkan 9:00.
Skráning á www.golf.is og í síma 452 4980 til klukkan 19:00 föstudaginn 19. júlí. Mótsgjald er 3.000 krónur.
Sumargleði í Heimilisiðnaðarsafninu á Húnavöku
Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi er eina safn sinnar tegundar á Íslandi. Í sumar er það sýning Héléne Magnússon „Lesið í prjón“ sem vekur óskipta athygli safngesta og munu Húnavökugestir geta notið hennar dagana 18.-21. júlí næstkomandi.
Á Húnavöku verður opið í Heimilisiðnaðarsafninu alla dagana frá klukkan 10 til 17. Á lokadegi Húnavöku, sunnudaginn 21. júlí frá klukkan 14 til 17 verður Sumargleði í safninu.
Margt um að vera í Textílsetrinu á Húnavöku
Gallerí listamanna verður opið.
Ólína um Ólínu. Ólína Friðriksdóttir sýnir textílmuni sem hún vann til minningar um föðursystur sína og nöfnu, Ólínu Brynjólfsdóttur, í tilefni af 100 ára ártíð hennar.
Nýjasta prjónabók Ístex verður kynnt og prjónaðar peysur og fleira verður til sýnis í Þekkingarsetrinu.
Á Húnavöku eru tvö ár síðan refillinn var opnaður. Búið er að sauma fyrstu 6m af 46m. Ný teikning er komin upp og nokkuð búið að sauma inn á hana. Allir velkomnir í sauma og fræðslu um refilinn og Vatnsdælasögu.
Jóhanna E. Pálmadóttir sýnir skartgripi og hnappa sem hún hefur hannað og saumað í gegn um tíðina.
Ashley Lamb er í starfsnámi hjá Textílsetrinu. Hún mun mála útilistaverk á vegg niður við Blönduósa. Verkefnið er styrkt af ýmsum fyrirtækjum á staðnum.
Opið verður í Textílsetrinu og Minjastofu Kvennaskólans á Húnavöku frá 11:00 til 17:00 föstudag til sunnudags. Sumaropnun er annars frá 13:00 til 17:00 alla daga nema mánudaga og þriðjudaga.
Skralli trúður verður á Húnavöku
Skralli trúður ætlar ekki að láta sig vanta á Húnavökuna. Skemmtun hans er einstök og má búast við töfrabrögðum, söngatriðum, rífandi stuði og stemmingu og almennum gamanleik í alúðlegu umhverfi við Félagsheimilið frá klukkan 14 til 16.
Blönduhlaup á Húnavöku
Blönduhlaup verður haldið laugardaginn 20. júlí kl. 11:00.
Hér er hægt að sjá frekari upplýsingar um hlaupið og skráningu.
Hermann Þór Baldursson sigurvegari í fyrra í 10 km hlaupi. Mynd: Húni.is