„Sumar á Skagaströnd“ frumsýnd á Kántrýdögum

Á Kántrýdögum, laugardaginn 18. ágúst, klukkan 17, verður frumsýnd heimildarmyndin „Sumar á Skagaströnd“ í félagsheimilinu Fellsborg. Frumsýning myndarinnar er öllum opin og íbúum á Skagaströnd og gestum Kántrýdaga boðið að koma og njóta sýningarinnar.

Myndin var unnin á árunum 2008-2011. Í henni er skoðað hvernig atvinnumálum á staðnum er háttað í víðu samhengi og horft til hátækni og menningar. Í myndinni er fjallað um kántrýtónlist,  NES listamiðstöð, Spákonuhof, BioPol og fylgst með fjölbreyttu lista- og mannlífi á Kántrýdögum.

Gerð myndarinnar var styrkt af Menningarráði Norðurlands vestra og unnin í samstarfi við Sveitarfélagið Skagaströnd.

Höfundur myndarinnar er Halldór Árni Sveinsson.

/skagastrond.is

Fleiri fréttir