Sumarfagnaður Karlakórs Bólstaðarhliðarhrepps

Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps stendur fyrir sumarfagnaði í Húnaveri í kvöld, síðasta vetrardag. Boðið verður upp á söng, kveðskap og dans. Gestakór verður Karlakór Eyjafjarðar.

Hagyrðingar úr röðum kórmanna sýna hvað í þeim býr undir styrkri stjórn Gísla H. Geirssonar. Síðan mun Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar leika fyrir dansi.

Skemmtunin hefst kl 20:30 og vonast kórfélagar til að sem flestir sjái sér fært að fana sumri með þeim.

Fleiri fréttir