Sumarfrí í Nýprent

Starfsfólk Nýprents er á leið í sumarfrí og verður prentsmiðjan lokuð á morgun föstudag svo og í næstu viku. Sjónhorn og Feykir komu út í dag en verða í fríi í næstu viku. Feykir.is mun að sjálfsögðu vera með fréttir eins og venjulega en hægt er að ná í blaðamen í síma 4557176 eða 8982597.

Gleðilega Verslunarmanna helgi, skemmtið ykkur vel, skemmtið ykkur fallega og komið heil heim.

Starfsfólk Nýprents

PS: gott í sólinni

Óáfengt jarðarberja Mojito

Einföld uppskrift að þessum eðal kokkteili. Með þessari útfærslu hafa vinsældirnar aukist á ný. Hér eru það fersk jarðarber auk myntulaufa sem gefa drykknum þetta sérstaka bragð og útlit.

Innihald
50 ml. Eplasider
4 stk. Jarðarber fersk
6 stk. Myntublöð fersk
3 msk. Hrásykur
1/2 stk. Lime ávöxtur
25 ml. Sódavatn
Mulinn ís

Aðferð
Myljið saman 1 og ½ jarðarber, hrásykur og 4 myntublöð auk safa úr 1/2 limeávexti. Setjið í glas, hrærið. Bætið Bacardi út í, fyllið glasið upp með sódavatni ásamt muldum ísnum. Ekki hræra í glasinu eftir að vínið er komið út í, drykkurinn getur orðið gruggugur og ólystugri. Berið fram skreytt með 3 jarðarberjahelmingum,  myntulaufum og skerið aðeins upp í fjórða jarðarberið og festið á glasbrúnina.

Fleiri fréttir