Sumarhúsin á bökkum Blöndu njóta vinsælda
„Við erum með tuttugu sumarhús hér í Brautarhvammi, flest þeirra eru um 60 fermetrar að stærð og eru öll vel búin flestum þeim þægindum sem ferðafólk sækist almennt eftir. Elstu húsin eru norsk, um 20 ára gömul. Við þau hús eru trén orðin ansi myndarleg, þannig að segja má að þau séu í skógi. Gróðurinn við yngri húsin er sömuleiðis orðinn nokkuð áberandi. Nokkur hús voru flutt inn frá Lettlandi en einnig eru hérna hús sem smíðuð voru á staðnum. Þá erum við með nokkur lítil bjálkahús, sem rúma tvo til sex gesti,“ segir Lárus Jónsson sem rekur sumarhúsabyggðina Glaðheima í Brautarhvammi á Blönduósi. Glaðheimar reka sömuleiðis í Brautarhvammi tjaldsvæði og upplýsingamiðstöð. Hann segir að nýting húsanna í sumar hafi verið mjög góð.
„Ég hef lagt töluverða fjármuni í markaðssetningu, sem líklega er að skila sér og staðsetningin er einstaklega góð. Auðvitað hefur hátt eldsneytisverð sitt að segja hvert ferðinni er heitið hjá fólki. Það er tiltölulega stutt hingað til Blönduóss frá helstu þéttbýlisstöðum landsins og héðan er er ekki langt í margar náttúruperlur svo dæmi sé tekið. Þótt margt gott hafi verið gert í uppbyggingu ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra á undanförnum árum þarf að gera enn betur, tækifærin eru sannarlega til staðar á sviði ferðaþjónustu.“
Lárus segir á Íslendingar séu í miklum meirihluta þeirra sem taka húsin á leigu.
„Það er almennt notaleg tilfinning að eyða nokkrum dögum í húsi þar sem viður er ráðandi. Hingað sækir ungt fólk til að eiga saman góðar stundir og sömuleiðis ömmur og afar með barnabarnabörnin sín, svo maður tali ekki um hina hefðbundnu vísitölufjölskyldu. Síðast en ekki síst standa húsin á bökkum Blöndu og flestir segja afar notalegt að heyra vatnsniðinn frá þessari frægu laxveiðiá. Svo má ekki gleyma Hrútey sem er skrautfjörður í hatti Blönduóssbæjar, Hrútey er nánast við hliðina Brautarhvammi. Þar er gróður fjölbreyttur auk þess sem fuglalíf þar er auðugt, gæsin á til dæmis griðland þar.“
Lárus segir að bústaðirnir séu ágætlega bókaðir næstu vikurnar.
„ Mér sýnist að ágúst og september verði góðir. Þeir sem stunda lax- og silungsveiði eru vel staðsettir hérna á Blönduósi og síðan tekur við gæsaveiðin. Þá má ekki gleyma réttunum, bæði fjárréttum og hrossaréttum. Áhugi fólks á réttum virðist alltaf vera að aukast og þá er tilvalið að gista í notalegum bústað. Ég er því tiltöluega sáttur við sumarið og haustið virðist lofa góðu, þannig að ég get ekki annað en bjartsýnn á framtíðina, segir Lárus Jónsson framkvæmdastjóri Glaðheima á Blönduósi.
Texti og myndir; Karl Eskill Pálsson