Sumarskemmtun á Blönduósi á sumardaginn fyrsta
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Listir og menning
23.04.2014
kl. 13.39
Hin árlega sumarskemmtun Blönduskóla verður haldin sumardaginn fyrsta, 24. apríl. Nemendur í 1.-7. bekk sjá um öll skemmtiatriði undir leiðsögn kennara. Skemmtunin hefst kl. 14:00. Potturinn er styrktaraðili þessarar sumarskemmtunar.
Í auglýsingu í dagskrárritinu Glugganum segir að aðgangseyrir sé 1000 krónur en ókeypis fyrir börn fædd 2001 og yngri.