Sumarskemmtun Blönduskóla á laugardaginn
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
06.04.2011
kl. 14.10
Það verður tekið forskot á sumarið næstkomandi laugardag þegar hin árlega sumarskemmtun Blönduskóla verður haldin en þá munu nemendur í 1.-7. bekk sjá um öll þau skemmtiatriði sem í boði verða undir leiðsögn kennara.
Skemmtunin hefst kl. 14:00 og kostar aðgöngumiðinn kr. 1.000. Ókeypis aðgangur er fyrir börn fædd 1998 (7. bekk) og yngri.