Sumarstörf fyrir námsmenn á Skagaströnd

Frá Skagaströnd. Mynd:FE
Frá Skagaströnd. Mynd:FE

Sveitarfélagið Skagaströnd auglýsir til umsóknar þrjú sumarstörf fyrir námsmenn 18 ára og eldri. Eru störfin hluti af atvinnuátaki sveitarfélagsins í samstarfi við Vinnumálastofnun til þess að fjölga tímabundið störfum fyrir námsmenn vegna Covid-19.

Á heimasíðu Svf. Skagastrandar kemur fram að störfin felast í umhverfisstörfum er varða fegrun umhverfis og bætta ásýnd sveitarfélagsins. Þau eru þess eðlis að æskilegt er að viðkomandi sé með menntun eða hafi reynslu af garðyrkju eða skrúðgarðyrkju þó svo að það sé ekki skilyrði.

Eftirfarandi hæfniskröfur eru gerðar:

• Færni til þess að vinna vel í hóp.
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
• Jákvæðni, starfsgleði, kurteisi, frumkvæði og sveigjanleiki.
• Samviskusemi og stundvísi.

Til að geta sótt um verða umsækjendur að vera orðnir 18 ára eða verða það á árinu. Umsókn þarf að fylgja staðfesting á námi milli anna, þ.e. nemendur verða að vera að koma úr námi og á leið í nám í haust. Þá þurfa að liggja fyrir upplýsingar um menntun og fyrri störf. Ráðningartími er tveir mánuðir og er miðað við að tímabilið sé 1. júní - 31. ágúst. Möguleiki er á ráðningu í þrjá mánuði en er það háð samkomulagi við sveitarfélagið þar um og skoðað í hverju tilfelli fyrir sigSjá nánar um skilyrði á vef Svf. Skagastrandar. 

Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um störfin á skrifstofu sveitarfélagsins eða með því að hafa samband í síma 455-2700 eða á netfanginu sveitarstjori@skagastrond.is. Umsóknarfrestur er til og með 24. maí 2020.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir