Sumarstörf hjá Sveitarfélaginu Skagaströnd
Sveitarfélagið Skagaströnd hefur auglýst sumarstörf laus til umsóknar hjá sveitarfélaginu í sumar. Þá vantar flokkstjóra til starfa í Vinnuskóla sveitarfélagsins og í ýmis verkefni á vegum sveitarfélagsins í samstarfi við Vinnumálastofnun ætluð námsmönnum, t.d. við skógrækt, umhverfismál og umsjón með golfvelli.
Skilyrði fyrir flokkstjórastörf er að umsækjendur séu 20 ára eða eldri og reynsla af sambærilegum störfum er kostur. Umsóknarfrestur er til 4. maí nk. en umsóknarfrestur vegna sumarstarfa námsmanna verður auglýstur síðar. Umsóknareyðublöð má fá á skrifstofu sveitarfélagsins.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofunni í síma 455 2700.