Sumarsýning Heimilisiðnaðarsafnsins verður opnuð í dag
Sumarsýning/sérsýning Heimilisiðnaðarsafnsins á Blönduósi, HALLA Hún er ég – Prjónatilveran, verður opnuð í dag, laugardaginn 7. júní kl. 15:00. Steinunn Kristín Valtýsdóttir (Dídí) mun syngja við opnunina. Þessi stund mun innihalda listamannaspjall með Höllu og tíma til að skoða sýninguna. Á sýningunni gefur á að líta nýtísku prjónaflíkur í bland við ýmiss konar veggstykki, skúlptúra og nytjahluti.
Feykir bað Elínu S. Sigurðrardóttur, forstöðukonu Heimilisiðnaðarsafnsins, að segja lesendum frá því hver Halla er. „Í stuttu máli þá er Halla Lilja prjónahönnuður og textíllistakona. Hún útskrifaðist með láði frá London College of Fashion 2021 en fluttist svo heim til Íslands og hefur starfað undir nafninu Halla Ármanns. Síðastliðið haust flutti Halla til Gautaborgar þar sem hún stundar meistaranám í textílhönnun við Swedish School of Textiles og mun útskrifast þaðan á næsta vori 2026.“
Elín bætir við að Halla Lilja hafi vakið verðskuldaða athygli bæði hér heima á Íslandi en einnig erlendis í heimi hönnunar og lista ekki síst fyrir vandvirk vinnubrögð á framleiðsluvörum sínum. Þess má geta að Halla Lilja mun starfa í Heimilisiðnaðarsafninu næstu 6-8 vikurnar.
Sýningin er opin almenning frá 7. júní - 31. ágúst á almennum opnunar tíma safnsins en mun standa fram í apríl og hægt að heimsækja samkvæmt samkomulagi.
Safnið er opið í sumar frá 1. júní - 31. ágúst klukkan 10-17. Feykir mælir með heimsókn í Heimilisiðnaðarsafnið. Öllum er velkomið að mæta við opnun sýningarinnar í dag – kaffi og kleinur á boðstólum.