Sundmót og hjálmaafhending Kiwanisklúbbsins Drangeyjar

Á morgun, miðvikudaginn 30. apríl verður haldið bikarmót Kiwanis og Tindastóls í sundi, en um 50 þátttakendur frá Norðurlandi vestra eru skráðir til leiks. Mótið fer fram í Sundlaug Sauðárkróks og hefst kl. 17:00. Að móti loknu verður verðlaunaafhending í matsal Árskóla og keppendum og aðstandendum boðnar upp á veitingar.

Fimmtudaginn 1. maí nk. verður svo hin árlega hjálmaafhending Kiwanis til fyrstu bekkinga í Skagafirði og Húnavatnssýslum. Afhendingin fer fram í krikanum (leiktækjasvæðinu) við Árskóla. Þar mun lögregla mæta á svæðið og verða grillaðar pylsur handa öllum þeim er mæta.

Fleiri fréttir