Sunnan átt og stöku skúrir í dag
Á Ströndum og Norðurlandi vestra er sunnan 3-8 og stöku skúrir. Hiti 3 til 10 stig. Á morgun er spáð suðvestlægri eða breytileg átt á landinu 3-8 m/s og skúrum, en bjart með köflum NA- og A-lands. Hiti 3 til 8 stig að deginum.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á fimmtudag:
Vestlæg átt, 3-10 m/s. Stöku él fyrir norðan, en skýjað með köflum SV-lands, en léttskýjað SA-lands. Hiti 0 til 8 stig, mildast syðst.
Á föstudag:
Gengur í suðaustan 8-15 með rigningu eða slyddu, en úrkomulítið NA-til framan af degi, en snýst í suðvestanátt með skúrum eða slydduéljum V-lands um kvöldið. Hiti 1 til 7 stig.
Á laugardag:
Vestan og norðvestanátt með éljum, en þurrt SA-lands. Kólnandi.
Á sunnudag og mánudag:
Suðvestanátt með skúrum eða éljum, en bjartviðri NA-til. Hiti 2 til 7 stig.