Sunnan átt og þurrt í landshlutanum í dag

Í dag er sunnan 3-5 og yfirleitt þurrt á Ströndum og Norðurlandi vestra. Hiti 3 til 6 stig, en vægt næturfrost í innsveitum. Norðan 3-8 á morgun og él. Hiti 0 til 3 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á fimmtudag:

Norðvestan og vestan 3-10 m/s. Dálítil él fyrir norðan, en skýjað með köflum syðra. Hiti 3 til 8 stig að deginum sunnanlands en um eða rétt undir frostmarki á N-verðu landinu.

Á föstudag:

Sunnan og suðaustan 10-18 m/s og rigning eða slydda, einkum S- og V-lands. Suðvestan 5-13 og skúrir eða slydduél S- og V-til um kvöldið. Hiti 1 til 8 stig.

Á laugardag:

Norðvestan- og vestanátt, 8-15 m/s. Éljagangur norðanlands. Kólnandi veður.

Á sunnudag og mánudag:

Vestlæg eða breytileg átt. Víða skúrir eða él, en úrkomulítið A-lands. Hiti 0 til 7 stig yfir daginn, svalast NA-til.

Á þriðjudag:

Suðaustan átt, rigning S- og V-lands. en síðan suðvestanátt og él. Hlýnar um tíma.

Fleiri fréttir