Súpukvöld og markaður í Fellsborg
Ungmennafélagið Fram ætlar að vera með súpukvöld og markað í Fellsborg í kvöld, miðvikudaginn 16. janúar, frá kl. 18:00 - 20:00. „Fjölmennum og eigum saman skemmtilega kvöldstund um leið og við styrkjum félagið til góðra verka og ekki er verra ef okkur tekst að grynnka á dótinu í geymslunni,“ segir á heimasíðu Skagastrandar.
Í boði verður að kaupa gúllassúpu (eða kakósúpu fyrir börnin ef þau vilja hana frekar), súpan kostar 1000 kr. fyrir fullorðna og 500 kr. fyrir grunnskólabörn (frítt fyrir 5 ára og yngri).
Einnig býðst fólki að leigja borð og selja þar notað útivistar- og íþróttadót (fatnað og búnað). Þeir sem vilja fá borð eru beðnir um að hafa samband við Dísu Ásgeirs. í síma 452 2923 eða 895 5472.