Svæðisbundin flutningsjöfnun

Á lokadegi Alþingis var samþykkt frumvarp til laga um svæðisbundna flutningsjöfnun þar sem leitast er við að jafna samkeppnisstöðu framleiðslu og útflutningsgreina á landsbyggðinni sem eru fjarri innanlandsmarkaði eða útflutningshöfnum.

 

Lilja Rafney Magnúsdóttir alþingismaður var framsögumaður málsins í efnahags og viðskiptanefnd og lagði til á milli 2. og 3. umræðu að sveitarfélög á Norður- og Austurlandi yrðu flokkuð á svæði 2 eins og Vestfirðir og fengju þar með 20% endurgreiðslu flutningskostnaðar en svæði 1 fær 10% endurgreiðslu.

Þó efnahags- og viðskiptaráðherra legðist gegn breytingartillögunni var hún samþykkt. Tilraunir hafa áður verið gerðar af fyrri stjórnvöldum að koma á flutningsjöfnuði en þær hafa ekki gengið eftir og segir Lilja Rafney þetta mjög mikilvægt skref í jöfnun búsetuskilyrða í landinu og brýnt að áfram verði unnið að jöfnun flutningskostnaðar sem einnig nái til einstaklinga og almennra fyrirtækja fjarri megin markaðssvæðum.  Það sé mikið réttlætismál fyrir landsbyggðina. Lögin taka gildi 1. janúar 2012 og verða endurskoðuð fyrir lok ársins.

Fleiri fréttir