Svanni - lánatryggingarsjóður auglýsir eftir umsóknum
Svanni - lánatryggingarsjóður kvenna auglýsir eftir umsóknum um lánatryggingar en sérstök athygli er vakin á því að nú er hægt er að sækja um lánatryggingar allt árið um kring en úthlutað verður tvisvar á ári, að vori og að hausti. Lánatryggingarsjóðurinn er eingöngu ætlaður verkefnum eða fyrirtækjum í meirihlutaeigu konu/kvenna og undir stjórn konu/kvenna.
Í verkefninu þarf að felast nýsköpun eða nýnæmi að einhverju marki, segir í auglýsingu á heimasíðu SSNV, og að líkur séu verulegar á að verkefnið/fyrirtækið leiði til aukinnar atvinnusköpunar kvenna.
Unnt er að sækja um ábyrgð vegna eftirtalinna þátta:
- Stofnkostnaðar
- Markaðskostnaðar
- Vöruþróunar
- Nýrra leiða í framleiðslu eða framsetningu á vöru/þjónustu
Í umsókn skulu eftirfarandi atriði koma fram:
- Upplýsingar um umsækjanda
- Greinargóð lýsing á verkefni/fyrirtæki, markmiðum þess og ávinningi
- Hverjir koma að umsókninni, og tilgreining samstarfsaðila
- Viðskiptaáætlun (ítarleg fjárhags-, og framkvæmdaráætlun)
- Lýsing á fjármögnun og staðfesting fjármögnunaraðila ef þeir eru til staðar
Hverri umsókn þarf að fylgja viðskiptaáætlun ásamt ítarlegum fjárhagsupplýsingum. Áhersla er lögð á að umsóknir séu vel unnar og vandaðar.
Til að fá lánatryggingu þarf að gera samning um handleiðslu og ráðgjöf við ráðgjafa og er slíkur samningur skilyrði fyrir því að ábyrgð sé veitt. Í samningi skal kveðið á um fjölda viðtala og tilhögun ráðgjafarinnar sem er sniðin að þörfum hvers og eins.
Ábyrgð skal ekki vera undir 1 milljónum króna og ekki yfir 10 milljónir króna að jafnaði. Sjóðurinn er í samstarfi við Landsbankann sem veitir lán og helming ábyrgðar á móti sjóðnum. Stjórn Svanna fer yfir og metur umsóknir í samvinnu og samráði við Landsbankann og er sameiginleg ákvörðun tekin um veitingar lánatrygginga.
Allar nánari upplýsingar veitir verkefnastjóri Svanna í síma 582-4914 en einnig er hægt er að senda fyrirspurnir í netfangið svanni@svanni.is.