Svanni – Umsóknarfrestur um lánatryggingu haust 2012

Þann 8. mars árið 2011 var undirritað samkomulag um endurreisn Lánatryggingasjóðs kvenna, en hann var starfræktur á árunum 1998-2003.  Verkefnið er liður í viðleitni stjórnvalda til að efla atvinnulíf og hvetja til nýsköpunar á Íslandi. Ennfremur hafa rannsóknir sýnt að konur eru síður tilbúnar að veðsetja eignir sínar en karlar og hefur það oft staðið verkefnum kvenna fyrir þrifum.  

Sjóðurinn er í eigu velferðarráðuneytis, iðnaðarráðuneytis og Reykjavíkurborgar og er verkefnið til fjögurra ára og lýkur þann 31.desember 2014.

Stjórn sjóðsins skipa þau Steinunn Valdís Óskarsdóttir sem jafnframt er formaður stjórnar og fulltrúi velferðarráðherra, Jón Steindór Valdimarsson sem er fulltrúi iðnaðarráðherra og Sigrún Elsa Smáradóttir fulltrúi Reykjavíkurborgar.   Vinnumálastofnun sér um umsýslu verkefnisins og er verkefnisstjóri sjóðsins staðsettur í Kringlunni.

Hægt verður að sækja um lánatryggingar á heimasíðunni til og með 1.október.

Svanni veitir lánatryggingar til kvenna með góðar viðskiptahugmyndir og er í samstarfi við Landsbankann um lánafyrirgreiðslu. Sjóðurinn veitir helming ábyrgðar á móti banka.

Eingöngu verkefni/fyrirtæki sem eru í meirihlutaeigu konu/kvenna og undirstjórn konu/kvenna geta sótt um tryggingu og gerð er krafa um að í verkefninu felist nýsköpun/nýnæmi að einhverju marki. Einnig er krafa um að líkur séu verulegar á að verkefnið/fyrirtækið leiði til aukinnar atvinnusköpunar kvenna.

Frekari upplýsingar eru á vef SSNV.

Fleiri fréttir