Svavar Halldórsson formaður LS
Svavar Halldórsson tekur formlega við stöðu framkvæmdastjóra Landssamtaka sauðfjárbænda (LS) á morgun föstudag.
„Þetta var bara hugmynd sem kom upp, að hugsa aðeins út fyrir rammann og fá einhvern sem kæmi með ferska strauma til að taka við þessu starfi,“ segir Þórarinn Ingi Pétursson, formaður LS um ráðninguna, í samtali við bbl.is.
Svavar hefur starfað á fjölmiðlum og að undanförnu hefur hann rekið fyrirtækið Íslenskur matur og matarmenning sem framleiðir fjölmiðlaefni með áherslu á mat og matvælaframleiðslu.
„Við gerum okkur grein fyrir því að það verða margir undrandi á þessari ráðningu en það er líka bara fínt stundum að fara í endurmat á stöðunni þegar mannaskipti verða og horfa í aðrar áttir,“segir Þórarinn ennfremur í viðtali við bbl.is.